Pole Fabric Fimmtudaga kl 19:00 - 5. nóvember
UPPLÝSINGAR UM NÁMSKEIÐIÐ
Pole Fabric er fullkomin blanda af pole og Silk Loftfimleikum. Þú lærir fjölbreyttar æfingar sem tengja saman súluna og silkið og opna alveg nýja möguleika í hreyfingum og samsetningum.
Ef þú elskar pole og langar að þróa færni þína í loftfimleikum er Pole Fabric frábært næsta skref! Þú lærir skemmtilegar nýjar hreyfingar og frumlegar leiðir til að útfæra pole-æfingar sem þú þekkir nú þegar á nýjan hátt.
Pole Fabric er skemmtileg viðbót við hefðbundna pole-þjálfun og hjálpar þér að byggja upp styrk fyrir bæði pole og loftfimleika.
Fyrsti tíminn er 5. október kl.19:00
Kennsla fer framm í Pole Sport.
Námskeiðið er einu sinni viku, og er alltaf á fimmtudögum, og stendur yfir í 4 vikur.
Þjálfari: Halldóra Kröyer
Síðasti tíminn: mánudagurinn 26. nóvember
Lengd hvers tíma: 50 mínútur
GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR
Fyrir byrjendur og lengra komna
Þú þarft ekki að hafa sérstakan grunn í Pole Fabric til að skrá þig á þetta námskeiðið. Þjálfarinn mætir þér þar sem þú ert og aðlagar kennsluna að reynslu og færni hvers nemanda.
Fyrir byrjendur: Þú lærir grunnatriðin á þínum hraða, prófar skemmtilega snúninga og tengir hreyfingar saman í fallegar, einfaldar samsetningar.
Fyrir lengra komna: Þú byggir ofan á grunninn þinn og lærir nýjar, krefjandi og spennandi samsetningar.
• Mættu tímanlega
• Best er að æfa í með stuttbuxur og aðsniðnar síðbuxur og síðermabol / leotard, fatnaður skal vera með sterkum saumum.
• Fatnaður má EKKI vera með krókum, rennilás, fröskum rennilás eða öðru sem getur skemmt Silkið.
• Hárið upp – flétta eða snúður
• Gott er að hafa með sér vatnsbrúsa (ekki úr gleri)
• Gervi neglur eru bannaðar í Silki, Sling og Fabric