Byrjaðu þína pole vegferð

POLE FERÐALAGIÐ HJÁ POLE SPORT

Pole er fjölbreytt líkamsrækt og listform sem sameinar styrk, jafnvægi, flæði og tjáningu. Í pole lærir þú að vinna með líkama þinn á nýjan hátt, byggja upp traustan grunn og þróast í takt við eigin getu – án pressu og samanburðar.Hjá Pole Sport trúum við því að engin ein leið henti öllum. Þess vegna er pole-kennslan okkar byggð upp sem skýrt ferðalag, þar sem hvert námskeið hefur sitt hlutverk og styður þig áfram á næsta stig þegar þú ert tilbúin.

Fyrsta skrefið

Pole Basics er fyrsta og mikilvægasta skrefið fyrir alla sem byrja að æfa pole hjá Pole Sport. Hér leggjum við grunninn að öryggi, líkamsbeitingu og sjálfstrausti á súlunni – áður en farið er lengra.

Í pole skiptir grunnurinn öllu máli. Rétt tækni, örugg uppbygging og góð líkamsvitund gera þér kleift að þróast áfram án meiðsla og með meiri ánægju. Þess vegna teljum við Pole Basics ómissandi fyrsta skref fyrir alla byrjendur, óháð styrk, aldri eða bakgrunni.

Pole Basics er einnig fullkomið námskeið ef þig langar einfaldlega að prófa pole á öruggan og þægilegan hátt – til að sjá hvort pole henti þér sem heilsurækt, án pressu eða skuldbindingar.

POLE BASICS

Pole Basics er inngangsnámskeið fyrir alla sem vilja kynnast pole á öruggan, skemmtilegan og uppbyggilegan hátt. Námskeiðið leggur grunn að réttum líkamsbeitingum, gripum og einföldum hreyfingum á súlu og er hannað til að byggja upp styrk, líkamsvitund og sjálfstraust í hvetjandi umhverfi.

Námskeiðið er fjögurra vikna og hentar öllum byrjendum. Þú þarft enga fyrri reynslu, sérstakan styrk eða bakgrunn til að taka þátt. Með hverjum tíma byggir þú upp grunninn jafnt og þétt og færð örugga leiðsögn í pole.

Hver tími hefst á markvissri upphitun sem undirbýr axlir, kjarna og grip. Því næst er unnið með grunnspuna, einfaldar stöður, öruggar upp- og niðurleiðir og stuttar samsetningar sem hjálpa þér að skilja hvernig hreyfingar tengjast á súlunni. Í lok hvers tíma er lögð áhersla á róandi teygjur og niðurkælingu sem styður við bata og liðleika.

Að námskeiðinu loknu hefur þú öðlast traustan grunn í pole, lært grunnatriði í gripum, hreyfingum og einföldum tengingum, auk þess að hafa byggt upp sjálfstraust og öryggi á súlunni.

POLE level 2 & LEVEL UP GUIDE

Eftir Pole Basics opnast leiðin inn í Pole level 2, sem eru opnir tímar í áskriftarkerfi Pole Sport. Þessir tímar eru ætlaðir þeim sem hafa lokið Pole Basics og eru tilbúnir að halda áfram að þróast í pole í frjálsara æfingaformi – með stuðningi kennara og skýrum ramma.

Til að tryggja öryggi og skýra framþróun vinnum við í Pole level 2  tímunum með Pole Sport Level Up Guide. Leiðarvísirinn hjálpar þér að sjá hvar þú ert stödd í þinni vegferð, hvaða grunnatriði þú ert að vinna með og hvað kemur næst – án þess að flýta ferlinu.

Level Up Guide er einnig öflugt verkfæri fyrir markmiðavinnu. Hann hjálpar þér að setja skýr og mælanleg markmið í þinni þjálfun og fylgjast með eigin framförum. Með því að merkja við hvern áfanga sem þú nærð að mastera færðu skýra mynd af árangrinum þínum og aukið sjálfstraust í ferlinu.

Level Up Guide byggir á því að sterkur grunnur skiptir öllu máli. Í stað þess að hoppa á milli stiga færðu skýra yfirsýn yfir hreyfingar, tengingar og færni sem þarf að ná tökum á áður en farið er lengra. Þannig styður guide-inn bæði við öryggi og sjálfstraust í þjálfuninni.

POLE BASICS SPIN

Pole Basics Spin er náttúrulegt framhald af Pole Basics og hentar þeim sem vilja dýpka pole-þjálfun sína og spreyta sig á snúningssúlu (spin pole) á öruggan og aðgengilegan hátt. Námskeiðið byggir áfram á grunninum en leggur meiri áherslu á flæði, stjórn og samspil hreyfinga í snúningi.

Námskeiðið er fjögurra vikna og ætlað þeim sem hafa lokið Pole Basics. Hér er farið rólega í hlutina, með skýra uppbyggingu og góðri leiðsögn, þannig að nemendur fái tíma til að skilja hvernig líkaminn vinnur með snúningnum í stað þess að berjast gegn honum.

Hver tími hefst á markvissri upphitun sem undirbýr axlir, grip og kjarna fyrir snúningshreyfingar. Því næst er unnið með einfaldar spin-hreyfingar, innganga og útganga, auk stuttra samsetninga sem hjálpa til við að byggja upp jafnvægi, flæði og líkamsvitund. Í lok hvers tíma er lögð áhersla á rólega niðurkælingu og teygjur.

Pole Basics Spin er frábært námskeið fyrir nemendur sem vilja halda áfram að æfa pole í námskeiðaformi, dýpka skilning sinn á hreyfingum og byggja upp meira sjálfstraust áður en farið er alfarið í opna pole-tíma.

Að námskeiðinu loknu ættir þú að vera orðin örugg á spin pole, hafa betri stjórn á flæði og vera tilbúin í næstu skref í pole ferðalaginu.

POLE TRANSITIONS

Pole Transitions er brúarnámskeið sem tengir saman grunninn úr Pole Basics og Pole Basics Spin og undirbýr nemendur fyrir Pole Beginner opna tíma. Námskeiðið leggur ekki áherslu á ný eða flóknari trikk, heldur hvernig hreyfingar tengjast saman á eðlilegan, öruggan og flæðandi hátt.

Námskeiðið er fjögurra vikna og hentar þeim sem hafa lokið Pole Basics og/eða Pole Basics Spin og vilja byggja upp meira sjálfstraust í tengingum, inngöngum og útgöngum á súlunni. Þetta er frábært námskeið fyrir nemendur sem kunna grunnatriði en upplifa stundum óöryggi í flæði eða næstu skrefum.

Hver tími hefst á upphitun sem leggur áherslu á líkamsstjórn, grip og undirbúning fyrir flæði. Því næst er unnið markvisst með tengingar milli hreyfinga, skipti á milli static og spin og mismunandi leiðir inn og út úr trikkum. Áhersla er lögð á að hreyfingar tengist mjúklega saman, með ró og öryggi.

Pole Transitions er hugsað sem stuðningsnámskeið, ekki nýtt stig. Markmiðið er að hjálpa nemendum að setja saman það sem þau hafa lært, finna sitt eigið flæði og vera betur undirbúin fyrir opna pole-tíma.

Að námskeiðinu loknu ættir þú að upplifa aukið sjálfstraust, betra flæði og meiri skilning á hvernig hreyfingar tengjast á súlunni – og vera tilbúin að halda áfram í Pole Beginner á þínum forsendum.

Hvernig virkar skráning og áskrift hjá Pole Sport?

Skráningarferlið virðist flókið í fyrstu – sérstaklega ef þú ert ný í Pole Sport. Við erum um þessar mundir að vinna að gerð ítarlegs leiðarvísis þar sem farið verður yfir skráningu í tíma, áskriftarkerfið og reglur Pole Sport, til að gera ferlið enn skýrara og aðgengilegra.

Hjá Pole Sport notum við skráningarkerfi sem heldur utan um námskeið, opna tíma, áskriftir og mætingar. Kerfið er nauðsynlegt til að tryggja öryggi, jafnræði og gott flæði í kennslunni, en getur tekið smá tíma að venjast.

👉 Á meðan leiðarvísirinn er í vinnslu er starfsfólk Pole Sport alltaf tilbúið að aðstoða þig, hvort sem það snýr að skráningu, áskrift eða öðrum spurningum sem kunna að vakna.

ALGENGAR SPURNINGAR UM SKRÁNINGU

Nei. Ef þú ert skráð í námskeið (t.d. Basics) þarftu ekki að nota skráningarkerfið strax. Við hjálpum þér í gegnum fyrstu skrefin og leiðbeinum þér þegar kemur að áskrift og opnum tímum.

Skráningarsíðan er fyrst og fremst notuð þegar þú:

  • ert með áskrift
  • ætlar að skrá þig í opna tíma eða afskrá þig úr þeim

Ef þú ert eingöngu í námskeiði þarftu yfirleitt ekki að nota hana.

Já, algjörlega.Starfsfólk Pole Sport er alltaf til staðar til að aðstoða, hvort sem það er í afgreiðslu, í skilaboðum eða með tölvupósti. Þú þarft ekki að redda þessu ein.

Ef þú ert með spurningar um skráningu, áskrift eða námskeið, þá er alltaf best að hafa samband við okkur áður en þú mætir.

Tölvupóstur: polesport@polesport.is
Sími: 778 4545 (ekki SMS)

Opnunartími er háður tímatöflu og því mælum við alltaf með að vera í sambandi fyrst.

Tilbúin að byrja?

Við tökum vel á móti þér

Skráðu þig og skemmtu þér með okkur í Pole Sport!