Refund policy

Skilmálar fyrir þjónustu og námskeið hjá Pole Sport

1. Almennt um námskeið Öll námskeið eru keypt fyrirfram í gegnum vefverslun. Kaup teljast staðfest þegar greiðsla hefur átt sér stað og staðfestingarpóstur hefur verið sendur.

2. Afbókunarreglur

  • Full endurgreiðsla: Hægt er að afbóka námskeið og fá fulla endurgreiðslu ef látið er vita með a.m.k. 7 daga fyrirvara áður en námskeið hefst.

  • Inneign: Ef afbókað er með skemmri fyrirvara en 7 dögum, en þó áður en námskeið hefst, er boðið upp á inneign hjá Pole Sport sem nýta má síðar.

  • Eftir að námskeið hefst: Ekki er boðið upp á endurgreiðslu eftir að námskeið er hafið, nema í undantekningartilfellum (sjá lið 3).

3. Veikindi eða forföll Ef iðkandi getur ekki klárað námskeið vegna langvarandi veikinda eða meiðsla, má óska eftir færslu á næsta námskeið eða inneign gegn framvísun læknisvottorðs.

4. Klippikort, stakir tímar & áskrift

  • Klippikort eru persónuleg og ekki endurgreidd.

  • Stakir tímar (drop-in) þurfa að vera afbókaðir með a.m.k. 24 klukkustunda fyrirvara til að hægt sé að nýta tímann síðar.

  • Áskrift er einungis hægt að segja upp með því að senda tölvupóst á polesport@polesport.is einum degi fyrir næsta gjalddaga.

5. Niðurfelling námskeiða Ef Pole Sport þarf að fella niður námskeið (t.d. vegna of fárra skráninga), eiga viðskiptavinir rétt á fullri endurgreiðslu eða færslu á annað sambærilegt námskeið.