Skemmtanir
Við í Pole Sport erum með margra ára reynslu í að skemmta hópum!
Gæsanir, steggjanir, vinahópar eða vinnustaða fjör við gerum þetta allt! Við bjóðum uppá þetta sígilda, Pole Fitness eða Pole Dans svo erum við einnig með Bungee Fitness sem klikkar auðvitað aldrei!
Verðskrá
Pole Fitness ................. 3.990 kr.- á mann (55 mín) leyfilegur fjöldi 6 - 30 manns
Pole Dance ................. 4.990 kr.- á mann (55 mín) leyfilegur fjöldi 6 - 23 manns
Bungee Fitness ............ 5.990 kr.- á mann (55 mín). leyfilegur fjöldi 6 - 12 manns
Lyra Loftfimleikar ............ 4.990 kr.- á mann (55 mín) leyfilegur fjöldi 6 - 15 manns
Vinsamlega athugið að með Hverri bókun þarf alltaf að fylgja nafn, kennitala og símanúmer greiðanda
Millifærslu upplýsingar:
Reikningsnúmer............ 0537-26-580711
Kennitala.................... 580711-0490
Skilmálar
- Bókun er ekki talin staðfest fyrr en greiðsla hefur borist
- Staðfesta skal fjölda og tímasetningu með tölvupósti að lámarki 10 dögum fyrir tímann, ef breytingar hafa orðið á fjölda þátttakenda skal það tekið fram í þeim tölvupósti
- Það er ekki hægt að gera neinar breytingar í afgreiðslu rétt fyrir tímann
- Hverri bókun þarf alltaf að fylgja nafn, kennitala og símanúmer greiðanda
- Greiða þarf fyrir að lámarki fyrir 6 manns jafnvel þótt þátttakendur séu færri
- Greiða þarf fyrir alla sem tilheyra hópnum hvort sem ákveðið sé að horfa á eða taka þátt
- Þátttakendur skulu alltaf fara eftir fyrirmælum frá starfsfólki Pole Sport
- Skór, matur og drykkir eru ekki leyfðir inn í Pole Sport
- Þátttakendum er ekki heimilt að neyta áfengis eða vera undir áhrifum áfengis í Pole Sport
- Vanvirðing á starfsfólki eða á eigum Pole Sport er ekki liðin og hefur þjálfari fulla heimild til þess að stöðva tímann ef hann sér ástæðu til án endurgjalds
- Afbókanir þurfa að berast með 24 klukkustunda fyrirvara til þess að hópurinn hafi rétt á endurgreiðslu
Almennar upplýsingar
- Fatnaður í hópeflum:
Allir skulu vera með teygju í hárinu og á tánum. Einnig er gott að vera með vatnsbrúsa (ekki úr gleri)
Pole: íþróttatoppur og stuttbuxur (leggings er leyfilegt en það er húðin sem heldur okkur uppi og það er mun erfiðara)
Lyra: íþróttatoppur, bolur og aðsniðnar íþróttabuxur
Bungee: íþróttatoppur, bolur og þykkar joggingbuxur, fyrir þá sem eru með viðkvæma húð er gott að vera í stuttbuxum innanundir
- Sturtu aðstaða er ekki í boði fyrir hópefli en við mælum með Dalslaug sem er í næsta nágrenni
- Hópnum er hleypt inn 5 mínútum áður en tími hefst, það er ekki hægt að lengja tímann ef hópur mætir of seint
- Þátttakendur skulu alltaf fara eftir fyrirmælum frá starfsfólki Pole Sport
- Skartgripir: hringir, stórir eyrnalokkar og naflalokkar eru ekki leyfilegir
- Pole Sport leyfir upptökur og ljósmyndatökur meðan á hópeflistíma stendur, með samþyggi viðstaddra
Bóka hópskemmtun
Gætið þess að láta nafn, síma og netfang fylgja og við munum svara eins hratt og mögulegt er.