FYRSTA SKREFIÐ
Bungee Basics er fyrsta og mikilvægasta skrefið fyrir alla sem byrja að æfa Bungee Fitness hjá Pole Sport. Hér leggjum við grunninn að öryggi, stjórnun í beltinu og góðri líkamsbeitingu – áður en farið er í meiri ákefð eða hraða.
Í bungee skiptir grunnurinn miklu máli. Rétt líkamsbeiting, góð stjórn á teygjunni og skýr uppbygging æfinga gera þér kleift að byggja upp styrk og úthald á öruggan hátt, með minni líkum á álagi eða meiðslum.
BUNGEE BASICS
Bungee Basics er skemmtilegt og aðgengilegt grunnnámskeið fyrir alla sem vilja prófa Bungee Fitness á öruggan og uppbyggilegan hátt. Hér lærir þú grunnatriði í líkamsbeitingu, stjórnun í beltinu og einföldum hreyfingum sem nýta stuðning teygjunnar.
Námskeiðið er fjögurra vikna og hentar öllum byrjendum. Þú þarft enga fyrri reynslu, ákveðinn styrk eða úthald – allt er byggt upp jafnt og þétt með skýrri leiðsögn og góðum stuðningi.
Hver tími hefst á upphitun sem undirbýr liðamót, kjarna og jafnvægi. Því næst eru kenndar grunnstöður í beltinu, léttar hopphreyfingar og einfaldar samsetningar þar sem áhersla er lögð á stjórn, öryggi og góða líkamsbeitingu. Tíminn endar á teygjum og rólegri niðurkælingu.
Bungee Basics er einnig fullkomið námskeið ef þig langar einfaldlega að prófa bungee sem heilsurækt, án pressu eða skuldbindingar, og sjá hvort þetta henti þér.
Námskeiðið getur þú endurtekið eins oft og þú vilt, eða þar til þú ert orðin örugg með að halda áfram í meira krefjandi æfingar.
BUNGEE bounce
Bungee Bounce er framhaldsnámskeið sem byggir áfram á grunninum úr Bungee Basics. Hér eykst ákefðin aðeins, fjölbreytnin og styrkur æfinga, með áframhaldandi áherslu á örugga framkvæmd og góða stjórn.
Námskeiðið er fjögurra vikna og ætlað þeim sem hafa lokið Bungee Basics eða hafa sambærilegan grunn. Tímarnir eru orkumiklir og krefjandi, en áfram aðgengilegir með stuðningi teygjunnar sem léttir álag og gerir æfingar skilvirkari.
Í tímum er unnið með fjölbreyttar styrktar- og þolæfingar, hoppsamsetningar og taktfastar hreyfingar sem reyna á samhæfingu og úthald. Áhersla er lögð á jafnvægi milli krafts og stjórnunar.
Bungee Bounce hentar þeim sem vilja halda áfram að byggja upp styrk og úthald í Bungee Fitness, og námskeiðið má endurtaka eins oft og þú vilt, eða þar til þú ert orðin örugg með að halda áfram í meira krefjandi æfingar, svo sem Bungee Blast.
BUNGEE BLAST
Bungee Blast er háorku framhaldsnámskeið fyrir þá sem vilja fá sem mest út úr hverjum tíma. Hér er lögð áhersla á low impact – high intensity þjálfun, þar sem hraði, kraftur og úthald eru í forgrunni, með áframhaldandi stuðningi teygjunnar sem dregur úr álagi á liði.
Námskeiðið byggir á Bungee Fitness og hentar þeim sem eru tilbúin í meiri ákefð og áskorun. Tímarnir eru hraðari og krefjandi, með kraftmiklum æfingum og samsetningum sem reyna á þol, sprengikraft og einbeitingu, án þess að fórna öryggi eða góðri líkamsbeitingu.
Í Bungee Blast er lögð áhersla á skilvirka framkvæmd æfinga, góða stjórn og að nýta tímann vel til að ná sterkri og krefjandi líkamsræktarupplifun.
Bungee Blast er fyrir þau sem vilja ögra sér í Bungee Fitness, og námskeiðið má endurtaka eins oft og þú vilt, eins lengi og þú upplifir að það styðji við markmið þín og þína þjálfun, áður en þú heldur áfram eða breytir áherslum.
Einnig hægt að fara í áskrift og mæta í opna bungee tíma, í bland við fjölbreytt úrval okkar af afreyingum, allt eftir því hvað hentar þér hverju sinni.
Hvernig virkar skráning og áskrift hjá Pole Sport?
Skráningarferlið virðist flókið í fyrstu – sérstaklega ef þú ert ný í Pole Sport. Við erum um þessar mundir að vinna að gerð ítarlegs leiðarvísis þar sem farið verður yfir skráningu í tíma, áskriftarkerfið og reglur Pole Sport, til að gera ferlið enn skýrara og aðgengilegra.
Hjá Pole Sport notum við skráningarkerfi sem heldur utan um námskeið, opna tíma, áskriftir og mætingar. Kerfið er nauðsynlegt til að tryggja öryggi, jafnræði og gott flæði í kennslunni, en getur tekið smá tíma að venjast.
👉 Á meðan leiðarvísirinn er í vinnslu er starfsfólk Pole Sport alltaf tilbúið að aðstoða þig, hvort sem það snýr að skráningu, áskrift eða öðrum spurningum sem kunna að vakna.
ALGENGAR SPURNINGAR UM SKRÁNINGU
Nei. Ef þú ert skráð í námskeið (t.d. Basics) þarftu ekki að nota skráningarkerfið strax. Við hjálpum þér í gegnum fyrstu skrefin og leiðbeinum þér þegar kemur að áskrift og opnum tímum.
Skráningarsíðan er fyrst og fremst notuð þegar þú:
- ert með áskrift
- ætlar að skrá þig í opna tíma eða afskrá þig úr þeim
Ef þú ert eingöngu í námskeiði þarftu yfirleitt ekki að nota hana.
Já, algjörlega.Starfsfólk Pole Sport er alltaf til staðar til að aðstoða, hvort sem það er í afgreiðslu, í skilaboðum eða með tölvupósti. Þú þarft ekki að redda þessu ein.
Ef þú ert með spurningar um skráningu, áskrift eða námskeið, þá er alltaf best að hafa samband við okkur áður en þú mætir.
Tölvupóstur: polesport@polesport.is
Sími: 778 4545 (ekki SMS)
Opnunartími er háður tímatöflu og því mælum við alltaf með að vera í sambandi fyrst.