Miðar á Keppnissýningu Pole Sport 22. nóvember
Sunnudagurinn 22. nóvember kl. 17:30
Við bjóðum ykkur velkomin á keppnissýningu hjá Pole Sport! Stelpurnar hafa æft atriðin sín af kappi undanfarna mánuði og nú er komið að lokaupptökunum fyrir alþjóðlega keppni.
Komdu og sjáðu atriðin í beinni þegar þau eru tekin upp og styddu stelpurnar áður en upptökurnar eru sendar inn í keppnina. Keppendur hafa möguleika á að taka upp oftar ein einusinni, svo gerðu ráð fyrir að klappa og hafa gaman!
Húsið opnar kl. 17:10 og sýningin hefst stundvíslega kl. 17:30. Þá lokum við fyrir inngöngu svo upptökurnar geti farið fram án truflana. Gert er ráð fyrir að sýningin standi í um tvær klukkustundir.
Miðaverð er 2.990 kr.
Við hlökkum til að sjá ykkur og hvetja stelpurnar áfram með ykkur!
*Áhorfendur gætu sést í upptöku keppanda