Level 2

Pole Beginner

Class Description
Level 2

Pole Beginner eða Level 2 er annað getustig af 5 í Pole Sport hér getur þú skráð þig í opna Pole Beginner tíma á tímatöflunni ásamt Strength And Conditioning og Pole Open Level. Nú þegar þú ert búin að læra fyrstu tökin á "static" súlu er komið að því að kynna þig fyrir "Spin" súlu, í Pole Beginner tímum lærir þú æðislegar dansseríur samhliða krefjandi æfingum á og í kringum súluna.

Hver tími samanstendur í grunninn af því sama og þú hefur fengið að kynnast á Pole Basics námskeiðinu það er að segja að eftir upphitun er unnið með viðunandi rútínur sem eru sérstaklega samsettar með það að markmiði að þú byggir upp þann styrk og liðleika sem þú þarf til þess að ná lengra í Pole Sport Guide Level up bæklingnum sem við vinnum eftir.

Hvernig skrái ég mig í tíma?

Þú byrjar á því að stofna aðgang en allar upplýsingar finnur þú undir Upplýsingar og smellir þar á Skráningar/Register. Að því loknu velur þú áskrift sem hentar þér, þú getur skoðað Verðskrá/Prices en þar sérð þú allar áskriftirnar okkar og það sem er innifalið í hverri áskrift. Nú ættir þú ekki að eiga í neinum vandræðum að skrá þig í þá tíma sem eru opnir Level 2. Ef þú ert í einhverjum vandræðum aðstoðum við þig auðvitað með ánægju.