Level 3
Þú ert komin í Intermediate! Vel gert og til hamingju með frábæran árangur. Á Level 3 getur þú skráð þig í alla sömu tíma tíma og á Level 2 en við bætist Pole Int og Combos Pole Int+
Pole Int tímarnir eru með sama fyrirkomulagi og þú þekkir nema að sjálfsögðu með nýjum áskorunum. Í Combos tímunum ertu að æfa erfiðari dans seríur og samsetningar með Pole Advanced og Pro þar sem reynsluboltarnir miðla af þekkingu sinni og þér gefst tækifæri til þess að læra og æfa með þeim allra bestu.
Þegar komið er á Level 3 er enn mikilvægara en áður að vera dugleg að mæta í tíma og einnig mæta í Strength And Conditioning og Combos tímana til þess að eiga ekki í hættu að staðna heldur viðhalda þessu góða gengi og halda áfram að bæta þig jafnt og þétt!