Level 1

Pole Basics

Level 1

Basics eða Level 1 er fyrsta getustig í Pole Sport, á þessu stigi lærir þú geggjaða takta á "static" súlu (súlan snýst ekki) en þú þarft ekki að vera búin að byggja upp styrk eða vera í góðu formi, námskeiðin okkar eru hönnuð þannig að þú byggir bæði styrk og þol jafnt og þétt í gegnum námskeiðið.

"Static" súlan er frábært loftfimleika áhald til þess byrja pole ævintýrið þitt, þú byggir upp góðann "core" styrk en þó sérstaklega vöðva efri hluta líkamans og lærir að skapa réttan skriðþunga til þess að framkvæma sveiflur á súlunni.

Hver tími hefst með upphitun svo er unnið með ákveðnar rútínur sem eru við hæfi hverju sinni samhliða styrktar æfingum sem hjálpa þér að byggja upp nauðsynlegan styrk, að því loknu er það svokallað "cooldown" og teygjur sem hjálpa þér einnig við að ná árangri og ná lengra.

Hvað á að hafa með sér í tíma?

Hvað varðar fatnað þá mælum við með stuttbuxum og góðum íþrótta topp. Gott er að hafa með sér vatnsbrúsa(ekki úr gleri) og vera með hárið í fléttu eða snúð.