Fjörugt og skemmtilegt grunnnámskeið fyrir alla byrjendur! Bungee er frábær leið til þess að hreyfa sig og bíður upp á endalausa möguleika til þess að framkvæma skemmtilegar æfingar.
Bungee Basics er fjögurra vikna námskeið þar sem hressir og skemmtilegir þjálfarar kenna þér öll mikilvægustu upphafs tökin í Bungee. Námskeiðin eru sett upp með þeim hætti að þú þarft ekki að vera með einhvern ákveðin styrk eða úthald til þess að getað tekið þátt, þú byggir það upp jafnt og þétt þegar þú byrjar að æfa.
Hver tími hefst með upphitun svo er unnið með skemmtilegar æfingar samhliða sérstökum Bungee styrktar æfingum sem hjálpa þér að byggja upp nauðsynlegan styrk, að því loknu tekur við svokallað "cooldown" eða niðurlag þar ertu að framkvæma teygjur sem gera þér kleyft að ná enn meiri árangri og ná ennþá lengra!
Að námskeiðinu loknu ættir þú að vera búin að læra grunnæfingarnar, fjölmargar Bungee styrktar æfingar og teygjur. Einnig ert þú komin vel af stað með að ná tökum á teygju bandinu og hvernig hægt sé að nota það við erfiðari æfingar.